Sr. Viðar Stefánsson annar okkar frábæru sóknarpresta hefur stundað nám í trommuslætti undanfarin ár undir leiðsögn Birgis Nielsen. Hefur námið gengið vel, enda Viðar samviskusamur og iðinn nemandi. Í vor tók Viðar Framhaldspróf í trommuslætti, sem þýðir að hann hefur lokið skólagöngu sinni hjá okkur hvað trommuslátt varðar. Heldur fátítt er að við útskrifum framhaldsprófsnemendur og aldrei hefur nemandi hjá okkur þreytt framhaldspróf á trommusett. Þetta er því nokkuð stórt skref ekki síður fyrir okkur í skólanum en Viðar sjálfan.
Í framhaldi af framhaldsprófi er nemendum uppálagt að halda framhaldsprófstónleika, sem oft eru kallaðir burtfarartónleikar.
Næstkomandi fimmtudagskvöld 19. nóvember kl: 20:00 eru á dagskrá burtfarartónleikar Viðars og verða þeir haldnir á Háaloftinu í Höllinni við Strembugötu. Þar mun koma fram með Viðari hljómsveit skipuð nemendum, kennurum og velunnurum Tónlistarskólans. Efnisskráin er virkilega áhugaverð og hressileg, eins og Viðars er von og vísa.
Allir eru velkomnir á tónleikana og ekki þarf að greiða aðgangseyri.
Við getum svo sannarlega mælt með þessum tónleikum, enda efnisskráin með því betra og gaman að sjá prestinn okkar í nýju hlutverki, sem hann leysir með glæsibrag.
Er það von okkar og Viðars að sem flestir láti sjá sig á Háaloftinu.
Meira um viðburðinn hér á facebook!
