Fara í efni
11.04.2019 Fréttir

Búið er að opna fyrir skráningu í Vinnuskólann fyrir sumarið 2019

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, júní og fram í ágúst. 
Deildu
Allir unglingar úr 8., 9., og 10. bekkjum grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í Vinnuskólanum. Unglingunum er skipt í hópa sem hver hefur sinn flokksstjóra og er stefnt að því að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en þó er ljóst að sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum.

Umsóknarfrestur er til 10. Maí 2019

Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á ernag@vestmannaeyjar.is