Laugardaginn 12-2 mætti til okkar á æfingu Friðrik Magnússon nemandi í Barnaskóla Vestmannaeyja .
Tilefnið var að taka við verðlaunum Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna í eldvarnargetraun 2005.
Var Friðriki veitt verðlaun, en Friðrik átti eina af 33 réttum lausnum sem dregin var út.
Verðlaunin voru: Vandaður MP3 spilari, viðurkenningarskjal, margmiðlunardiskur um eldvarnir á heimilum og reykskynjari.
Við í Slökkviliði Vestmannaeyja viljum þakka öllum 8 ára börnum í Eyjum fyrir veitta aðstoð í eldvörnum á heimilum.
16.02.2006
Brunavarnarátak 8 ára barna 2005 Eldvarnargetraun.
Laugardaginn 12-2 mætti til okkar á æfingu Friðrik Magnússon nemandi í Barnaskóla Vestmannaeyja . Tilefnið var að taka við verðlaunum Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna í eldvarnargetraun 2005.