Föstudaginn 2. október fór fram brunaæfing í Kjarnanum, íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Markmið æfingarinnar var að æfa viðbrögð við mögulegum eldsvoða og tryggja að íbúar og starfsfólk þekki verklag og öruggar rýmingarleiðir.
Áður en æfingin hófst fengu íbúar og starfsfólk fræðslu um eldvarnir í húsinu og hvernig bregðast skuli við ef eldur kemur upp. Slökkviliðsstjórinn Fiddi Palli aðstoðaði við æfinguna og veitti jafnframt góð ráð um viðbrögð og öryggi.
Æfingin gekk mjög vel og starfsfólk stóð sig afar vel við að koma íbúum á örugga staði á örskömmum tíma. Æfingin gaf jafnframt mikilvægt tækifæri til að fara yfir verklag og aðbúnað og greina þau atriði sem vert er að huga betur að til að tryggja sem best öryggi og aðgengi allra við neyðaraðstæður.
Brunaæfingar sem þessar eru mikilvægur þáttur í öryggisstarfi og gefa bæði íbúum og starfsfólki tækifæri til að æfa viðbrögð við neyðaraðstæðum.
