Fara í efni
15.04.2021 Fréttir

Bókasafnið opnar á ný!!!

Nú hafa samkomutakmarkanir verið rýmkaðar og Bókasafnið mun opna dyr sínar, í dag 15. apríl, fyrir bókaþyrstum Vestmannaeyingum.

Deildu

Safnið er opið 10-17 alla virka daga meðan sóttvarnaryfirvöld leyfa. Vel er gætt að öllum sóttvörnum og við viljum biðja gesti um að vera með grímur og spritta hendur eða setja á sig hanska við komuna á safnið.

Við hlökkum innilega til að sjá ykkur!
Starfsfólk bókasafnsins