Einnig afhendir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Eyjabikarinn sem þau fá sem synda yfir álinn milli lands og Eyja.
Allt hefst þetta kl: 12.00 á sunnudaginn í Einarsstofu, Safnahúsi með súpu boði Söguseturs 1627. Að lokinni súpunni verður Eyjasundsbikarinn afhendur og listamennirnir Balazs og Kittý bjóða okkur upp á stutta dýrðartónlist. Á eftir, kl: 12:30 í Einarsstofu skrifar Bjarni Harðarson undir samning við Sögusetur 1627 um útgáfu á Reisubók sr. Ólafs Egilssonar. Að því loknu kynnir Bjarni nýjar bækur nýjar bækur hjá Sæmundarútgáfunni og hann og Guðjón Ragnar Jónasson lesa úr nýjum bókum sínum.
Það verður svo kl. 14:30 á sama stað sem Guðrún Bergmann fjallar um nokkrar einfaldar leiðir til að bæta heilsuna og kynnir nýjustu bók sína BETRA LÍF fyrir konur á besta aldri.
