Fara í efni
12.02.2026 Fréttir

Bátakaup á höfninni

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í gær voru samþykkt bátakaup fyrir Vestmannaeyjahöfn. Þetta eru fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því að Lóðsinn var smíðaður en hann var afhentur Vestmannaeyjahöfn árið 1998.

Deildu

Báturinn er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen og er hann 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Báturinn er keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna. 

Báturinn er keyptur frá Kanada og ber í dag nafnið Dalton Defender. Tveir starfsmenn Vestmannaeyjahafnar fóru til St. John’s í Kanada í byrjun mánaðar til að skoða vinnu- og dráttarbátinn Dalton Defender með möguleg kaup í huga. Báturinn kom vel út úr þessari skoðun en hann var smíðaður árið 2017 í klassa Bureau Veritas og var fyrst gerður út frá Svíþjóð. 

Báturinn þykir öflugur og vel útbúinn og hefur einungis verið keyrður um 4.800 tíma. Báturinn á að afhendast í Argentia í Kanada þaðan sem hann verður fluttur til Íslands um miðjan mars.

Með þessum bátakapum er verið að koma til móts við að umsvif hafnarinnar hafa aukist verulega á undanförnum árum en frá aldamótum hefur skipakomum sem þarfnast þjónustu fjölgað um rúmlega 40%. Fram undan eru enn stærri verkefni, meðal annars tengd uppbyggingu við Gjábakkakant þar sem gert er ráð fyrir móttöku allt að 20.000 brúttótonna skipa. Til þess að sinna slíkum skipum er í flestum tilfellum nauðsynlegt að hafa tvo dráttarbáta til taks.