Elís, forseti bæjarstjórnar og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri fóru yfir sögu bæjarstjórnar og þróun byggðar í Vestmannaeyjum síðustu öldina. Lögð var fram sérstök hátíðarsamþykkt þar sem ákveðið er að halda áfram framkvæmdum við Ráðhús sem ætlað er nýtt hlutverk. Þá var sérstök hátíðarbókun vegna afmælis Kvenfélagsins Líknar sem fagnaði 110 ára afmæli þennan dag.
Meðal gesta á fundinum voru m.a. þingmennirnir Ásmundur Friðriksson, Páll Magnússon, Smári McCarthy, Birgir Þórarinsson, allir úr Suðurkjördæmi og Halldóra Mogensen, þingmaður Reykvíkinga.
Myndatexti: Bæjarstjórn Vestmannaeyja á 100 ára afmælinu. Helga Kristín Kolbeins, Trausti Hjaltason, Njáll Ragnarsson, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Elís Jónsson.