Fara í efni
03.03.2026 Fréttir

Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman á aukafundi í morgun vegna stöðunnar sem komin er upp varðandi dýpkunarmálin í Landeyjahöfn.

Deildu

Vegagerðin tilkynnti í gær um bilun í vél við hliðarskrúfu í Álfsnesinu þegar það var við dýpkun í Landeyjahöfn aðfaranótt mánudags og þurfti skipið frá að hverfa. Kom fram hjá Vegagerðinni að væri til vél í landinu tæki um þrjá daga að gera við en annars gæti tími án dýpkunar orðið allt upp í fjórar vikur.   

Bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Herjólfs funduðu í kjölfarið með Vegagerðinni og lögðu áherslu á að grípa þyrfti til aðgerða án tafar og leita leiða til að halda dýpkun áfram. Jafnframt var bent á mikilvægi þess að íbúar og atvinnulíf í Vestmannaeyjum þyrftu ekki að sæta skertum samgöngum til lengri tíma. 

Kjartan Elíasson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, var gestur á fundi bæjarráðs og fór yfir nýjustu stöðu mála. Þar kom fram að ný vél sé væntanleg til landsins í næstu viku og að gert sé ráð fyrir að dýpkunarskipið geti hafið störf að nýju fimmtudaginn 12. mars, gangi áætlanir eftir. 

Bæjarráð leggur áherslu á að sú tímaáætlun sem Vegagerðin hefur kynnt standist og að fyrir liggi viðbragðsáætlun komi til frekari bilana. Þá hvetur ráðið innviðaráðuneytið og þingmenn Suðurkjördæmis til að tryggja Vegagerðinni nauðsynlegt fjármagn svo hún geti sinnt hlutverki sínu.