Bæjarráð Vestmannaeyja - 3093. fundur
19. febrúar 2019 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Njáll Ragnarsson formaður, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, Trausti Hjaltason aðalmaður og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá:
Umræða um samgöngumál – 201212068 | ||
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála við undirbúning dýpkunar í Landeyjarhöfn. Formaður bæjarráðs fór yfir fund hans og bæjarstjóra með tveimur stjórnarmönnum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. | ||
2. | Samræmdur réttur starfsmanna vegna andláts nákomins ættingja – 201902076 | |
Í flestum kjarasamningum opinberra starfsmanna er að finna samskonar ákvæði um rétt starfsmanna til leyfis vegna andláts nákomins ættingja. Hins vegar er ekki að finna slíkt ákvæði í kjarasamningum tveggja stéttarfélaga kennara og skólastjórnenda. Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að leggja til að samræma rétt starfsfólks hvað þetta varðar. | ||
Niðurstaða | ||
Bæjarráð samþykkir að samræma rétt starfsmanna Vestmannaeyjabæjar til leyfis vegna andláts nákomins ættingja með eftirfarandi hætti: | ||
3. | Staða samgönguáætlunar - 201902007 | |
Bæjarráð fjallaði um þær breytingar sem umhverfis- og samgöngunefnd hefur lagt til að taka inn í samgönguáætlun Alþingis. | ||
Niðurstaða | ||
Bæjarráð fagnar því að hin svokallaða "skoska leið" sé komin inn í samgönguáætlun. Það er stórt skref í að gera innanlandsflug að almenningssamgögnum. Jafnframt lýsir bæjarráð ánægju með að inn í texta samgönguáætlunar sé gert ráð fyrir óháðri úttekt á Landeyjarhöfn. | ||
4. | Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), 356. mál. - 201902032 | |
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur óskað eftir umsögn Vestmannaeyjabæjar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna þess efnis að kosningaaldur verði lækkaður niður í 16 ár. | ||
Niðurstaða | ||
Bæjarráð telur mikilvægt að samræma réttindi ákveðnum aldri og eðlilegast sé að kosningaaldur og kjörgengi fylgi sjálfræðisaldri. Samband íslenskra sveitarfélaga leggur áherslu á að sveitarstjórnarmenn taki afstöðu til málsins og beinir bæjarráð því til bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum að koma afstöðu sinni áleiðis við Sambandið. | ||
5. | Endurgjald til fyrrum stofnfjáreigenda Sparisjóðs Vestmannaeyja vegna samruna sparisjóðsins og Landsbankans. - 201504034 | |
Eins og fram hefur komið sendi bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar bankastjóra Landsbankans hf. bréf, þar sem óskað var eftir afstöðu Landsbankans til þess hvort bankinn muni greiða öðrum fyrrum stofnfjáreigendum, sem ekki eru aðilar að dómsmáli Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn Landsbankanum, í samræmi við niðurstöður dómstóla fari svo að niðurstaðan verði sú að bankanum beri að greiða hærra verð fyrir stofnfjárhlutina | ||
Niðurstaða | ||
Bæjarráð lýsir vonbrigðum með að Landsbankinn geti ekki gefið skýr svör um hvort aðrir fyrrum stofnfjáreigendur fái viðbótargreiðslu, fari dómsmál á þann veg, að bankanum beri að greiða þeim stofnfjáreigendum sem höfðuðu mál á hendur bankans viðbótargreiðslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þessum upplýsingum á framfæri við þá stofnfjáreigendur sem ekki eru partur af dómsmáli Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn Landsbankanum. | ||
6. | Málefni Sæheima - 201902075 | |
Bæjarstjóri fór yfir fund sem hann átti með forstöðumanni Sæheima og forstöðumanni Þekkingarseturs Vestmannaeyja þann 14. febrúar sl. | ||
Niðurstaða | ||
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar | ||
7. | Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu - 201902084 | |
Bæjarstjóri kynnti bréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, þar sem óskað er umsagnar vegna beiðni um úrskurð sem ráðuneytinu barst frá Helgu Kristínu Kolbeins bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Óskað er eftir umsögn Vestmannaeyjabæjar svo ráðuneytið geti metið hvort taka eigi til skoðunar, sem frumkvæðismál sbr. 112. gr. sveitarstjórnarlaga, hvort hefja hefði mátt vinnu við þá ákvörðun bæjarráðs að fela endurskoðendum Vestmannaeyjabæjar að framkvæma heildarúttekt á kostnaði við framkvæmdir við Fiskiðjuna á árunum 2015-2018. | ||
8. | Umræður um málefni Landsbankans - 201902074 | |
Rætt var um starfskjarastefnu Landsbankans og launakjör bankastjóra á sama tíma og viðkvæmar viðræður eiga sér stað milli aðila vinnumarkaðarins vegna gerð kjarasamninga. | ||
Niðurstaða | ||
Vestmannaeyjabær sem hluthafi Landsbankans hvetur stjórnendur Landsbankans og hluthafa til að beita sér fyrir því að starfskjarastefna Landsbankans verði endurskoðuð á næsta aðalfundi Landsbankans þann 20. mars næstkomandi. Ríkissjóður Íslands er stærsti hluthafi Landsbankans og er því eðlilegt að skattborgurum sé sýndur sá sómi að launakjör og hækkanir séu með skynsamlegum hætti og taki mið af gildum um ábyrga meðhöndlun opinberra fjármuna og heilbrigðu launaumhverfi opinberra stofnanna og fyrirtækja. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10