Nemendafjöldi hefur aukist nokkuð og eru nú rúmlega 130 nemendur við skólann, sem er ánægjuefni. Við bjóðum upp á nám á flest hljóðfæri, söng, tónfræðigreinar og samspil. Enn er hægt að bæta við nemendum, sérstaklega í söngnámi og á málmblásturshljóðfæri, svo sem trompet, básúnu og skyld hljóðfæri. Biðlisti er í píanónám, en auðveldara er að komast að á önnur hljóðfæri og í söng. Hægt er að sækja um nám á umsóknarvef Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja er einnig komin á fullt. Nýverið tóku tíu krakkar úr sveitinni þátt í landsmóti C-sveita (sem eru elstu nemendur skólasveita) í Reykjanesbæ. Þar æfðu þau og léku ásamt á þriðja hundrað börnum víðs vegar að af landinu. Starf skólalúðrasveitarinnar er jafnan öflugt, sækir hún þau landsmót sem í boði eru, spilar hér heima við ýmis tækifæri auk þess að fara erlendis annað hvert ár til tónleikahalds. Nemendur sem læra á blásturshljóðfæri og slagverk eiga möguleika á að komast í Skólalúðrasveitina. Nú eru laus pláss fyrir byrjendur og lengra komna í skólasveitinni. Því er um að gera að skrá sig og taka þátt í skemmtilegu starfi sveitarinnar.
Húsnæði okkar hefur tekið nokkrum stakkaskiptum að undanförnu. Skipt hefur verið um gólfefni og húsnæðið málað að innan í björtum litum og gert snyrtilegt. Einnig er kominn nýr inngangur þar sem er aðgengi fyrir fatlaða, auk þess sem lyfta er komin í húsið og salerni fyrir fatlaða. Það er því bjartara yfir öllu starfinu hjá okkur þessa dagana í nýskveruðu húsnæði fullu af tónlist þar sem allir geta tekið þátt.
Fram undan er fjölbreytt og spennandi skólaár og hvetjum við foreldra og áhugasama tilvonandi nemendur að kynna sér námsframboð skólans. Við hlökkum til áframhaldandi tónlistarstarfs með nemendum, fjölskyldum þeirra og samfélaginu öllu.