Helsta breytingin felst í því að í stað fasts mánaðargjalds verði foreldrum boðið að greiða fyrir þá daga sem börnin nýta frístund. Gjaldið verður jafnframt stiglækkandi eftir því sem fleiri dagar eru nýttir.
Einnig er gert ráð fyrir sérstökum möguleika á að kaupa fylgd á íþróttaæfingar fyrir börn sem nýta frístund að takmörkuðu leyti en þurfa á slíkri þjónustu að halda. Áfram verður boðið upp á heilsdagsvistun á skráningardögum gegn viðbótargjaldi.
„Með þessum breytingum viljum við koma betur til móts við ólíkar þarfir fjölskyldna og gera þjónustuna sveigjanlegri. Það er mikilvægt að foreldrar hafi meira val um nýtingu frístundar og greiði í samræmi við þá þjónustu sem þeir velja fyrir börnin sín.“ segir formaður fræðsluráðs.
Gjaldskrárbreytingarnar rúmast innan 2,5% viðmiða bæjarstjórnar um gjaldskrárhækkanir.
Jafnframt er unnið að endurskoðun reglna frístundar og mun fræðsluráð taka þær til afgreiðslu á næsta fundi.