Fara í efni
16.02.2022 Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar fyrir skólaárið 2023-2024 og er umsóknarfrestur til og með 20. mars 2023.

Deildu

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Þeir sem geta sótt um í sjóðinn eru kennarar, kennarahópar, fagaðilar við skóla, einn eða fleiri skólar saman og fræðslusvið í samstarfi við skóla. Sjóðurinn styrkir verkefni til eins árs en einnig stærri verkefni til þriggja ára og þá eftir verkþáttum.

Ekki er um sérstaka áhersluþætti að ræða fyrir sjóðinn þetta árið.

Sótt er um rafrænt í íbúagátt og verður umsóknum svarað fyrir 30. apríl 2023

Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir veitir Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi, sími 488-2000, netfang:drifagunn@vestmannaeyjar.is

Umsókn um styrk úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla –rafræn umsókn í íbúagátt