Fara í efni
29.01.2021 Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar fyrir skólaárið 2021-2022 og er umsóknarfrestur til og með 28. febrúar 2021.

Deildu

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins.

Þeir sem geta sótt um í sjóðinn eru kennarar, kennarahópar, fagaðilar við skóla, einn eða fleiri skólar saman og fræðslusvið í samstarfi við skóla.

Áhersluþættir sjóðsins 2021-2022:

-Framsæknir kennsluhættir sem m.a. auka fjölbreytni í kennslu sem byggir á nýtingu á tækni, teymiskennslu og þemanámi
-Hreyfing og hreysti
-Áhugahvöt og vellíðan
-Læsi
-Stærðfræði

Athugið að hægt er sækja um styrki sem tengjast öðrum áherslum en þeim sem sjóðurinn setur fram en áhersluþættir sjóðsins hafa forgang.

Sótt er um rafrænt í íbúagátt og verður umsóknum svarað fyrir 31. mars 2021

Nánari upplýsingar veitir Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi, sími 488-2000, netfang:drifagunn@vestmannaeyjar.is

Umsókn um styrk úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla – rafræn umsókn í íbúagátt hér