Fara í efni
06.03.2026 Tilkynningar

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leik-, grunn- og tónlistarskóla Vestmannaeyjabæjar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Þróunarsjóð leik- grunn- og tónlistarskóla Vestmannaeyjabæjar fyrir skólaárið 2026-2027. Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2026

Deildu

Tilgangur sjóðsins er að styðja við þróunar- og nýsköpunarstarf í leik-, grunn- og tónlistarskóla sveitarfélagsins. Sjóðurinn styrkir verkefni til eins árs og stærri verkefni til þriggja ára og er þá sótt um eftir verkþáttum.

Hverjir geta sótt um?
Kennarar, kennarahópar, fagaðilar við skóla, einn eða fleiri skólar í sameiningu, auk fræðslusviðs í samstarfi við skóla.

Áhersluþættir sjóðsins 2026-2027:

  • Upplýsinga- og miðlalæsi
  • Náttúran allan ársins hring
  • Nám og hreyfing
  • Sjálfstyrking og vellíðan nemenda
  • Efling íslensk orðaforða

 

Sótt er um rafrænt í íbúagátt og verður umsóknum svarað fyrir 30. apríl 2026.

Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir veitir Helga Sigrún Í. Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála sími 488-2000, netfang:helgasigrun@vestmannaeyjar.is

Umsókn um styrk úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla – rafræn umsókn í íbúagátt. Umsóknin er undir flokknum "Fræðslumál"