Menntunar- og hæfnikröfur:
· Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
· Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af leikskólastarfi.
· Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.
· Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Meginverkefni:
Uppeldi og menntun:
· Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
· Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Stjórnun og skipulagning:
· Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
· Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Foreldrasamvinna:
· Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
· Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Annað:
· Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
· Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
· Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2021.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf/prófskírteini auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið.
Umsóknir berist með tölvupósti til Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra í Víkinni-5 ára deild á netfangið gudrun@grv.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
