Fara í efni
10.05.2021 Fréttir

Auglýst er eftir deildarstjóra í Víkina-5 ára deild í GRV

Við Víkina 5 ára deild er staða deildarstjóra laus til umsóknar.

Deildu

Við Víkina 5 ára deild er staða deildarstjóra laus til umsóknar. Starfshlutfall eftir samkomulagi 85%-100%. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Menntunar- og hæfnikröfur:  

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun skilyrði. 
  •  Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
  •  Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi. 
  •  Reynsla af deildarstjórn í leikskóla æskileg. 
  •  Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. 

Megin verkefni
Stjórnun og skipulagning:
 

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 
  •  Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni 
  •  Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar. 
  •  Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar. 
  •  Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar. 
  •  Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra. 

Uppeldi og menntun: 

  •  Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni. 
  •  Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. 
  •  Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt. Foreldrasamvinna: 
  •  Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl. 
  •  Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra. 
  •  Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans. 
  •  Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga. 

Annað: 

  •  Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
  •  Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. 
  •  Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum. 

Vestmannaeyjabær hvetur karla jafnt sem konur að sækja um starfið.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 3. ágúst 2021. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2021. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf/prófskírteini auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið. Umsóknir berist með tölvupósti til Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra í Víkinni-5 ára deild á netfangið gudrun@grv.is