Fara í efni
18.12.2005 Fréttir

Auglýsing um styrki úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2006

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2006. Sjóðurinn er í vörslu menntamálaráðuneytis og sér þriggja manna stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar.
Deildu

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2006. Sjóðurinn er í vörslu menntamálaráðuneytis og sér þriggja manna stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara geta sótt um framlög úr sjóðnum, t.d. skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar, kennaramenntunarstofnanir, félög og fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að námskeiðum verði að fullu lokið eigi síðar en við lok skólaársins 2006-2007. Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrkveiting niður en hægt er að sækja um að nýju við næstu úthlutun.

Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna að byggt sé á:

  • að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans
  • skólastefnu og aðalnámskrá
  • fagmennsku og gæðum

Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem njóta endurmenntunarinnar.

Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sundurliðaða kostnaðaráætlun.

Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig greiðslum verður háttað.

Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 15. febrúar 2006, á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi í menntamálaráðuneytinu og á vef ráðuneytisins.

Upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla, reglur sjóðsins o.fl. er að finna á vef menntamálaráðuneytisins: menntamalaraduneyti.is

Af vef mrn.

Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar