Fara í efni
17.07.2006 Fréttir

Auglýsing um styrki Jafnréttissjóðs

Starfræktur skal sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að b
Deildu

Starfræktur skal sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.  Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða í ár annars vegar veittir styrkir til rannsókna á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði bæði að því er varðar launakjör og áhrif og hins vegar til rannsókna á áhrifum gildandi löggjafar hér á landi s.s. lögum um sjálfstæðan rétt feðra til fæðingarorlofs.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 millj. kr. til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis (www.forsaetisraduneyti.is, Jafnréttissjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400, netfang postur@for.stjr.is). Umsóknarfrestur er til 1. september 2006 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2006. Umsóknir til Jafnréttissjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.
Jafréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.
Umsóknareyðublað

Af vef forsætisráðuneytis

Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar.