Fara í efni
26.10.2012 Fréttir

Auglýsing um skipulagsmál frá Umhverfis-og skipulagsráði

Deildu
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 12. október 2012 að auglýsa tillögu deiliskipulags á hafnarsvæði H-1 vesturhluti í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir byggingarreit fyrir frystiklefa á lóð Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 102 og stækkun akgreina á Garðavegi.
Skipulagstillagan er sett fram í greinargerð og á deiliskipulagsuppdrætti. Tillagan verður auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga á tímabilinu 26. október 2012 til 7. desember 2012. Deiliskipulagið liggur frammi í safnahúsi Ráðshúströð, hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is.
Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum er til kl. 12.00 þann 7. desember 2012. Skila skal inn athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa, Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjum. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
 
 
Sigurður Smári Benónýsson
skipulags- og byggingarfulltrúi.