Laxey ehf. áformar að auka umfang framleiðslugetu úr 11.500 tonnum í 42.000 tonn á ári ásamt áformum að reisa seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Megin markmið framkvæmdarinnar er að skapa aukið rými fyrir landeldi á svæðinu og efla fiskeldi sem atvinnugrein í Vestmannaeyjum.
Með breytingu á aðalskipulagi er áætlað að stækka iðnaðarsvæðið I3 í Viðlagafjöru til að auka við athafnasvæði fiskeldis sem þar er starfrækt. Stækkunin iðnaðarsvæðisins nær yfir meginhluta efnistökusvæðis sem er nyrst í Viðlagafjöru. Iðnaðarsvæðið er nú 16,64 ha og verður 20,9 ha. Efnistökusvæði E-1 er fellt út og mörk við svæði Óbyggð svæðis ÓB-3 breytast lítillega.
Í gildandi Deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru eru skilgreindar tvær lóðir og er uppbygging á annarri þeirra, lóð 1, langt á veg komin. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir nýrri lóð, lóð 3, nyrst á svæðinu þar sem gert verður ráð fyrir seiðaeldisstöð allt að 15.000 m2 að gólffleti. Gert er ráð fyrir mön umhverfis lóðina við Eldfellsveg og að lega vegslóða að Viðlagafjöru frá norðri breytist.
Gert er ráð fyrir að mörk milli lóða 1 og 2 í Viðlagafjöru breytist. Einnig er gert ráð fyrir að lóð nr. 1 stækki og að heildar gólfflötur mannvirkja aukist og verði að hámarki allt að 71.000 m2. Á lóð 2 var áður gert ráð fyrir geymslu jarðefna en þar er nú skilgreindur byggingarreitur með heildar gólffleti mannvirkja allt að 25.000 m2.
Skipulagsgögn má finna á útprentuðu formi í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
(Aðalskipulag mál nr. 1473/2025 og deiliskipulag mál nr. 1474/2025).
Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt.
Veittur er frestur til og með 21. maí 2026 til að skila athugasemdum vegna málsins.



