Fara í efni
16.03.2020 Fréttir

Auglýsing um skipulagsmál

Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi á Hafnarsvæði (H-1)

Deildu

Í tillögunni felst að breyting er gerð á byggingarskilmálum reits nr. D1 á lóð Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 14A. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv 1:2000, dags. 10. feb. 2020. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. 

Tillagan verður auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga á tímabilinu 28. febrúar til 10. apríl 2020. Skipulagsgögn liggja frammi hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is, undir Skipulagsmál.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega, til umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið bygg@vestmannaeyjar.is, eigi síðar en 10. apríl 2020.
Uppdráttur 
28.2.2020.
Skipulagsfulltrúi