Fara í efni
30.01.2009 Fréttir

Auglýsing um skipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 22. janúar 2009 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis við Hástein, í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Deildu

Breytingin felst í því að stækkaður er byggingarreitur fyrir fjölnota íþróttahús vestan við Týsheimili.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, frá 30. jan. 2009 - 13. mars 2009. Nánari upplýsingar veitir Skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflagar athugasemdir við tillöguna sem skulu hafa borist Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar Tangagötu 1, eigi síðar 13. mars 2009. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.

Tillaga