Fara í efni
30.03.2007 Fréttir

Auglýsing um skipulag - Vestmannaeyjabær

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis við Hástein Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 22. mars 2007. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis við Hástei
Deildu

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis við Hástein

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 22. mars 2007. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis við Hástein, í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Breytingin felst í því að tjaldsvæði er staðsett við Þórsheimili með samnýtingu við þau mannvirki sem fyrir eru.

Deiliskipulagstillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, frá 30. mars 2007 - 11. maí 2007. Nánari upplýsingar veitir Skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflagar athugasemdir við tillöguna sem skulu hafa borist Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar Tangagötu 1, eigi síðar 11. maí 2007. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.

Íþróttavöllur deiliskipulag - KORT

Vestmannaeyjum, 26 mars 2007.
Sigurður Smári Benónýsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi