Auglýsing um tillögu af deiliskipulagi á hafnarsvæði H-2, vesturhluti.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 29. nóvember 2012 að auglýsa tillögu deiliskipulags á hafnarsvæði H-2 vesturhluti í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir bílastæðum og byggingarlóð í botni Friðarhafnar, umferðargata að Eiði er áætluð fyrir vestan byggingarlóð í botni Friðarhafnar og bættu umferðarflæði athafnasvæðis á Eiðið með tengingu við Kleifar ofan við hliðarfærslu skipalyftunnar.
Skipulagstillagan er sett fram í greinargerð og á deiliskipulagsuppdrætti. Tillagan verður auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga á tímabilinu 5. desember 2012 til 16. janúar 2013. Deiliskipulagið liggur frammi í safnahúsi Ráðshúströð, hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is.
Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum er til kl. 12.00 þann 16. janúar 2013.
Skila skal inn athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa, Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjum. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Sigurður Smári Benónýsson,
skipulags- og byggingarfulltrúi.