Kjörstaður í Vestmannaeyjum við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026 verður í Barnaskólanum, inngangar eru um norður- og suðurdyr.
Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.
Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 22. júlí 2026 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 22. júlí 2026 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa í húsum er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.
Vestmannaeyjum, 12. ágúst 2026
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar
Ólafur Elísson
Ásta Björk Guðnadóttir
Sigurbergur Ármannsson