Kjörstaður í Vestmannaeyjum við sveitarstjórnarkosningar 27. maí 2006 verður í Barnaskóla Vestmannaeyja, inngangur um norður- og suðurdyr.
Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 síðdegis sama dag.
Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. maí 2006 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. maí 2006 við Hátún til og með Vesturvegi, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja á kjördegi.
Vestmannaeyjum 22. maí 2006
Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum.
Jón Hauksson
Ólafur Elísson
Sigurður Einar Vilhelmsson