Fara í efni
10.04.2026 Auglýsingar

Auglýsing um íbúakosningu, M2-svæðið

Vestmannaeyjabær boðar til íbúakosningar þar sem spurt verður: 

Deildu

Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem fór undir hraun í gosinu 1973? 
 
Íbúakosningin tekur til M2‑svæðisins, sem er afmarkað á meðfylgjandi korti (grænt svæði, 9.155 m2). 

Kosningarrétt í íbúakosningunni hafa þeir íbúar sem eiga kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum og hafa skráð lögheimili í Vestmannaeyjabæ.

Atkvæðagreiðsla fer fram frá 4. maí til 16. maí

Hægt er að greiða atkvæði á eftirfarandi kjörstöðum:

  • 4. – 15. maí: Ráðhús (ein kjördeild), opið 13:00-15:00 

  • 16. maí: Barnaskóli (tvær kjördeildir), opið 9:00 – 22:00

Íbúafundur með nánari upplýsingum verður haldinn í Eldheimum 20. apríl nk. kl. 17:30

Íbúakosningin er haldin á vegum Vestmannaeyjabæjar í samræmi við sveitarstjórnarlög og reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.

Atkvæðagreiðslan er ráðgefandi fyrir bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar.