Fara í efni
10.04.2015 Fréttir

Auglýsing um breytt deiliskipulag á hafnarsvæði H-2.

Deildu
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi á hafnarsvæði H-2 í Vestmannaeyjum.
 
Í tillögunni felst að byggingarreitur á lóð Kleifar 2 stækkar um 1152 m2 til austurs og suðurs, auk þess gerir tillagan ráð fyrir hækkun á hámarkshæð bygginga á sömu lóð úr 13 m í 15 m. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv 1:1000, dags. 30. mars 2015. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
 
Tillagan verður auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga á tímabilinu 10. apríl til 22. maí 2015. Skipulagsgögn ligga frammi í safnahúsi Ráðshúströð og hjá umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is.
 
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega, til umhverfis- og framkvæmdasviðis Skildingavegi 5, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið bygg@vestmannaeyjar.is, eigi síðar en 22. maí 2015. 
 
Hér er hægt að skoða kynningarefni skipulagstillögunar.
 
Skipulagsfulltrúi