Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 11:00 til 12:00 í fundarherbergi Lögmannsstofu Vestmannaeyja, á 2. hæð að Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum. Heimilt er að skila framboðslistum fyrr til Yfirkjörstjórnar á sama stað.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 9 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 18. Framboðslista fylgi yfirlýsing þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Hverjum lista skal fylgja skrifleg yfirlýsing 40 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 80. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
Greina skal fullt nafn, kennitölu og heimilisfang hvers meðmælanda. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja.
Vestmannaeyjum, 24. mars 2022
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar
Jóhann Pétursson, formaður
Ólafur Elísson Þór
Ísfeld Vilhjálmsson
