Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar 2008 og 2009. Auglýst eftir umsóknum, frestur til að skila rennur út 19. febrúar.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar vegna skerðingar þorskaflaheimilda
Styrkir verða veittir til: Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja. Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu.
Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna, sköpunar nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki/hlutafé til menntunar- og rannsóknarverkefna. Nánari upplýsingar um mat á umsóknum má finna hér. Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að nálgast hér. Umsóknum skal skila fyrir 19. febrúar til atvinnuþróunarfélaga eða samtaka sveitarfélaga á viðkomandi svæði.
- Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnabraut 8, 310 Borgarnesi http://www.ssv.is/ sími: 437-1318
- Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Árnagötu 2-4, 400 Ísafjörður http://www.atvest.is/ sími: 450-3000
- Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, http://www.ssnv.is/ sími 455-2510
- Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Skipagata 9, 600 Akureyri, http://www.afe.is/ sími: 460-5700
- Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Garðarsbraut 5, 640 Húsavík, http://www.atting.is/ sími: 464-0415
- Þróunarfélag Austurlands, Miðvangi 2, 700 Egilsstöðum, http://www.austur.is/ sími: 471-2545
- Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss, http://www.sudur.is/ sími: 480-8210
- Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, Iðavellir 12B, 230 Reykjanesbær http://www.sss.is sími 420-3288