Fara í efni
25.03.2013 Fréttir

Atvinna-sumar Íþróttamiðstöð

 Óskað er eftir karlkyns starfsmanni í íþróttamannvirki Vestmannaeyjabæjar. 

Deildu
 Um er að ræða fasta stöðu í sumar auk afleysinga á stakar vaktir, sérstaklega um helgar. Starfshlutfall er um  90%-95%  í fasta stöðu.

Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl.

Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Laun góð þar sem um vaktavinnu er að ræða.

Leitað er að traustum starfsmanni með góða þjónustulund sem á  gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.

Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.

Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.

Viðkomandi þarf helst að geta unnið frá lokum maí og að minnsta kosti fram í miðjan ágústmánuð.

Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig  á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is

Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum