Fara í efni
01.03.2013 Fréttir

Atvinna-sumar Íþróttamiðstöð

Óskað er eftir sumarstarfsmönnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. 

Deildu
 Um er að ræða fastar stöður í sumar auk afleysinga á stakar vaktir, sérstaklega um helgar. Starfshlutfall er á bilinu 90%-100% í fastar stöður.

Í öllum störfum felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl.

Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Laun góð þar sem um vaktavinnu er að ræða.

                                                       

Leitað er að traustum starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga  gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.

Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.

 

Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.

 

Viðkomandi þarf helst að geta unnið frá lokum maí og að minnsta kosti fram í miðjan ágústmánuð.

 

Umsóknarfrestur er til 14. mars nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig  á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is

 

Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum