Fara í efni
27.07.2017 Fréttir

Atvinna - Íþróttamiðstöð

Óskað er eftir tveimur karlmönnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Um er að ræða 100% starfshlutfall til framtíðar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 28. ágúst n.k.
Deildu
Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Í starfinu felst m.a. baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla, þjónusta við Týsheimili og Eimskipshöll o.fl.
 
Leitað er að traustum starfsmanni með góða þjónustulund sem á gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.
 
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss (fyrir ofan Landsbankann) og einnig á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Umsóknum skal skila í afgreiðslu Ráðhúss.
 
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 866-7464. Einnig á netfanginu gretar@vestmannaeyjar.is