Fara í efni
28.11.2012 Fréttir

Atvinna - Íþróttamiðstöð

 Óskað er eftir kvenmanni til starfa í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. 

Deildu
 Ø  Kvenmaður í 50% stöðugildi til framtíðar, þar sem viðkomandi þarf að geta hafið störf  í síðasta lagi 1. febrúar 2013.

Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, eftirlit með íþróttahúsum, afgreiðsla o.fl. Unnið er á dag- kvöld- og helgarvöktum, 7,5-10 klst. í senn. Laun góð þar sem um vaktavinnu er að ræða.

 

Leitað er að traustum starfsmanni með góða þjónustulund sem á  gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.

Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.

 

Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.

 

Umsóknarfrestur er til 4. desember nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456 og á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is

 

Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum