Fara í efni
11.07.2013 Fréttir

Atvinna Íþróttamiðstöð

 Óskað er eftir starfsmönnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.

Um er að ræða tvær fastar karlmannsstöður í 100% starfshlutfalli. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf um miðjan ágúst.

Deildu
Sund sundlaug rennibraut
Einnig fastar stöður í hlutastarfi í boði, 50-60%, þar sem eingöngu er unnið á virkum dögum.  karlmanns- eða kvenmannsstöður. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf um miðjan ágúst eða miðjan september.

Í öllum störfum felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl.

Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Laun ágæt þar sem um vaktavinnu er að ræða.

 Leitað er að traustum starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga  gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.

Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.

Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.

Umsóknarfrestur er til 17. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig  á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is

Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum