Fara í efni
02.12.2021 Fréttir

Atvinna í boði

Skólaliðar óskast í Grunnskóla Vestmannaeyja

Deildu

Óskað er eftir skólaliða í Barnaskóla:

Staðan felur í sér að mestu leyti ræstingu í skólahúsnæðinu eftir að skóla lýkur og gæslu á göngum í lok skóladags. Starfshlutfall er um 30%, vinnutími er: Mánudagar og þriðjudagar frá: 14:00-16:00, miðvikudagar og fimmtudagar frá: 13:30-16:00 og föstudagar frá: 13:00-15:00.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 3.janúar 2022.

Óskað er eftir skólaliða í Hamarsskóla:

Staðan er afleysingastaða og í fyrstu frá kl. 13:00-15:45 alla virka daga (um 35% starf), fljótlega bætist við stöðuna og sem verður þá 100% staða með vinnutíma frá 7:45-15:45 alla virka daga. Staðan er til afleysinga frá 3. janúar og mögulega út árið 2022.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 3.janúar 2022.

Afleysing skólaliða, tímavinna. Barna– og Hamarsskóli:

Þessi staða sem um ræðir er afleysing, viðkomandi þarf að geta komið til vinnu eftir þörfum og oft með litlum fyrirvara. Afleysing getur verið bæði i Barna– og Hamarsskóla.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.

Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020.

Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar hér eða með tölvupósti á annaros@grv.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488 2202, eða á  annaros@grv.is. Einnig má hafa samband við Guðrúnu Ágústu Möller húsvörð í Hamarsskóla s: 861 4363 og/eða Kristján Egilsson húsvörð í Barnaskóla s: 861 4362.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar.

Umsóknarfrestur er til 15. desember.