Óskum eftir að ráða starfsmann í stuðningsþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við einstaklinga inni á heimili þeirra við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup ofl. Um er að ræða 50% starf í dag, kvöld og helgarvinnu.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða starf til frambúðar og er vinnutími breytilegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Allar frekari upplýsingar gefur deildarstjóri stuðningsþjónustu Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma: 488 2607 eða á netfanginu: kolla@vestmannaeyjar.is
Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Stavey eða Drífanda stéttarfélags.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem hafa ekki rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur er til og með 19 nóvember 2021.
