Fara í efni
31.05.2022 Fréttir

Atvinna í boði

Tímabundin staða leikskólakennara

Deildu

Laus er til umsóknar tímabundin staða leikskólakennara í leikskólanum Kirkjugerði í Vestmannaeyjum. Um er að ræða 52% stöðu þar sem viðkomandi vinnur miðvikudaga-föstudags í fyrstu viku og mánudag til þriðjudags í næstu viku frá 7:45-16:00. Verður ráðið í stöðuna til eins árs.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af leikskólastarfi.
  • Góð skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna í samræmi við skólastefnu sveitafélagsins, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla.
  • Tekur þátt í að skipulegja og þróa faglegt starf.
  • Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Björk Guðnadóttir aðstoðarleikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488 2280 eða með tölvupósti á astabjork@vestmannaeyjar.is.

Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til aðstoðarleikskólastjóa á netfangið astabjork@vestmannaeyjar.is merkt „Leikskólakennari Kirkjugerði“.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags leikskólakennara. Þeir aðilar sem ráðnir eru á leikskólann þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsingar úr sakaskrá hjá rikissaksóknara.

Ef leikskólakennari fæst ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2022