Fara í efni
04.05.2022 Fréttir

Atvinna í boði

Forstöðumaður á gæsluvelli

Deildu

Forstöðumaður veitir gæsluvelli forstöðu þar sem börn á aldrinum 20 mánaða til 6 ára geta
leikið sér í öruggu umhverfi.

Helstu verkefni:

  • Sér um að opna og loka gæsluvelli
  • Tekur á móti börnum og sér um skráningu barna inn á gæsluvöllinn
  • Heldur utan um skráningu og greiðslufyrirkomulag
  • Gengur frá í lok dags og þrífur húsnæði
  • Tekur saman upplýsingar um nauðsynjavörur, leikföng og annað sem þarf að
    endurnýja og miðlar til fræðslufulltrúa
  • Aðstoðar börn, hvetur og leiðbeinir starfsfólki

Hæfniskröfur:

  • Uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla og ánægja af starfi með börnum
  • Skyndihjálparnámskeið barna er æskilegt
  • Stjórnunarreynsla er kostur
  • 18 ára lágmarksaldur
  • Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 11. maí nk.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020

Laun skv. kjarasamningi: Stavey/Drífandi

Umsóknir skulu berast með tölvupósti á drifagunn@vestmannaeyjar.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Gunnarsdóttir í síma 488 2000 eða í tölvupósti  drifagunn@vestmannaeyjar.is