Fara í efni
25.03.2022 Fréttir

Atvinna í boði

Lausar stöður árið 2022-2023 í Grunnskóla Vestmannaeyja - GRV

Deildu

Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru rúmlega 500 nemendur og er skólinn starfræktur á tveimur starfsstöðvum, annars vegar í Barnaskóla v/Skólaveg og hins vegar í Hamarsskóla v/Bessahraun.

Við Grunnskóla Vestmannaeyja eru lausar eftirfarandi stöður skólaárið 2022-2023:

  • Íþróttakennari 70 – 90% starfshlutfall (til afleysinga skólaárið 2022-2023)
  • Sérkennari á miðstigi, 80% starfshlutfall
  • Umsjónarkennari á öllum stigum 80%-100% starfshlutfall

Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf og með áhuga á teymiskennslu og á þróunarverkefni skólans, Kveikjum neistann. Hafa velferð og þroska nemenda að leiðarljósi.

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið.

Launakjör eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ og SÍS.

Starfsmaður þarf að geta hafið störf 15. ágúst n.k.

  • Skólaliði í Barnaskóla 30% starfshlutfall

Staðan felur í sér að mestu leyti ræstingu í skólahúsnæðinu eftir að skóla lýkur og gæslu á göngum í lok skóladags. Starfshlutfall er um 30%, vinnutími er: Mánudagar og þriðjudagar frá: 14:00-16:00, miðvikudagar og fimmtudagar frá: 13:30-16:00 og föstudagar frá: 13:00-15:00.

  • Afleysing skólaliða, tímavinna. Barna –og Hamarsskóli:

Þessi staða sem um ræðir er afleysing, viðkomandi þarf að geta komið til vinnu eftir þörfum og oft með litlum fyrirvara. Afleysing getur verið bæði i Barna –og Hamarsskóla.

Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.

Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.


Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020

Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á annaros@grv.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488 2202, annaros@grv.is.