Fara í efni
09.03.2022 Fréttir

Atvinna í boði

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í leikskólanum Kirkjugerði í Vestmannaeyjum. Um er að ræða 100% stöðu

Deildu

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af leikskólastarfi.
  • Góð skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Helstu verkefni:

Uppeldi og menntun:

  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.og hlúir að andlegri og líkamlegri velferð þeirra

Stjórnun og skipulagning:

  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt..
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

Foreldrasamvinna:

  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.

Umsóknarfrestur er til 25. mars 2022.

Starfið er laust strax eða eftir samkomulagi.

Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til leikskólastjóra á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is merkt „Leikskólakennari Kirkjugerði“. Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags leikskólakennara.

Hvatning til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Frekari upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488 2280.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.