Fara í efni
24.02.2022 Fréttir

Atvinna í boði

Óskað er eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlað fólk 

Deildu

Hlutverk þjónustukjarnans er að veita íbúum stuðning og leiðsögn í öllu er varðar persónulega hagi og heimilisrekstur svo sem þrifnað, þvott, matreiðslu, innkaup og annað samkvæmt starfslýsingu. Einnig skal þeim veittur stuðningur í tómstundastarfi og fá fylgd s.s. til lækna, í klippingu o.s.frv.

Starfshlutfall: 68%

Vinnufyrirkomulag: Vaktavinna, virka daga, á kvöldin og um helgar

Ráðningartímabil: Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Tímabundin staða til 6 mánaða.


Helstu verkefni:

  • Starfsmaður sér um almenna umönnun skjólstæðinga vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á. Nálægð við þjónustuþega er mikil.
  • Önnur verkefni eru heimilisstörf s.s. þvottar, þrif, matargerð
  • Starfsmaður fylgir skjólstæðingum vegna ýmissa erinda utan heimilis s.s. til lækna, tannlækna, í klippingu, fatakaup, tómstundir, íþróttir, kirkja o.fl. og aðstoðar þá eftir þörfum.
  • Starfsmenn þurfa að kynnast íbúum vel til að geta lesið í þeirra langanir og þarfir og geta áttað sig á ef eitthvað bjátar á hjá íbúanum sem hann á erfitt með að koma í orð sjálfur.
  • Starfið getur einnig falist í meðferðarvinnu íbúa og krefst þess að starfsmaður sé ávallt athugull og vakandi fyrir breytingum á atferli íbúa og líðan hans.

Hæfniskröfur:

  • Kostur er að hafa reynslu og áhuga á að vinna með fötluðu fólki.
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Frumkvæði og samviskusemi.
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Sigurjónsdóttir forstöðukona í síma: 488 2550 / 6903497 eða á netfangið:  ingibjorg@vestmannaeyjar.is

Laun skv. kjarasamningi SÍS og Stavey/Drífandi

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022.