Frekari liðveisla/heimaþjónusta – dagvinna
Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum til starfa í frekari liðveislu/heimaþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við fatlaða einstaklinga inn á heimili þeirra og við athafnir daglegs lífs, t.d. matarinnkaup ofl. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og samvinnuhæfni.
Hægt er að sækja bæði um starf í félagslegri og frekari liðveislu/heimaþjónustu og fá þá stærra starfshlutfall.
Umsóknarfrestur er til 1. október og má nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuveri í Ráðhúsinu eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Lára Dögg Konráðsdóttir á lara@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.
