Fara í efni
19.08.2010 Fréttir

Atvinna - Íþróttamiðstöð

Óskað er eftir starfsmönnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Deildu
Um er að ræða:
Kvenmann, 50% eða 100% stöðugildi til framtíðar, þar sem viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Karlmann í 100% stöðugildi til framtíðar.
 
Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl. Unnið er á dag - kvöld og helgarvöktum.
 
Leitað er að traustum starfsmanni með góða þjónustulund sem á  gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456.
 
 
 
Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum