Fara í efni
11.02.2026 Fréttir

Athafnasvæði AT-2 verði iðnaðarsvæði I-4

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 29. október að auglýsa tillögu að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 fyrir landnotkunarreit athafnasvæðis AT-2 skv. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Deildu

Tillagan gerir ráð fyrir að skilgreining landnotkunarreitsins verði breytt frá því að vera athafnasvæði í að verða iðnaðarsvæði. Vaxtarmörk þéttbýlis eru færð til þannig að þau ná utan um iðnaðarsvæðið. Mörkum landnotkunarreitsins er breytt þannig að hann falli betur að aðliggjandi landslagi og stækkar við það úr 15,4 ha í 16,6 ha.

Markmiðið er að geta boðið upp á lóðir undir fjölbreyttari starfsemi en gert er ráð fyrir á athafnasvæðum. Brýn þörf er á lóðum undir iðnaðarstarfsemi í sveitarfélaginu.

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50 og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 124/2024.

Allir þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta vegna málsins eru hvattir til að koma á framfæri athugasemdum sínum. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar eigi síðar en 25. mars 2026.