Fara í efni
14.10.2026 Tilkynningar

Átak í umgengni, gámar og númerslausar bifreiðar

Deildu

Vestmannaeyjabær mun á næstu vikum fara í átak sem miðar að því að bæta umgengni á lóðum og koma óleyfisskyldum gámum og númerslausum bifreiðum í viðunandi horf.

Lóðarhöfum þar sem gámar eru staðsettir án tilskilins leyfis verður sent bréf þar sem þeim er gefinn frestur til að fjarlægja gáminn.

Samhliða verður farið yfir númerslausar bifreiðar og bílflök sem standa til lengri tíma á lóðum og almennum stæðum. Markmiðið er að bæta ásýnd og umgengni, draga úr óþarfa langtímageymslu og tryggja að brugðist sé við þar sem slíkt kann að valda lýti, óþrifnaði eða hættu.

Átakið miðar fyrst og fremst að því að gefa lóðarhöfum tækifæri til að koma sínum málum í rétt horf. Verði ekki brugðist við innan tilgreinds frests verður viðkomandi mál tekið til frekari afgreiðslu og eftir atvikum gripið til þeirra úrræða sem lög og reglugerðir heimila til að knýja fram úrbætur.

Vestmannaeyjabær hvetur lóðarhafa til að fara yfir aðstæður á sínum lóðum og gera viðeigandi ráðstafanir.