Einnig standa slökkviliðsmenn vaktir þegar skip frá olíufélögum með bensínfarm losa hér í Eyjum og var það í 9 skipti á árinu.Við hjá eldvarnaeftirlitinu sjáum einnig um umsagnir til sýslumanns fyrir gististaði, veitingastaði og samkomustaði þær umsagnir voru 50 á árinu, einnig voru gerðar 11 brunavarnaskýrslur fyrir stærri byggingar. Slökkviliðið tók þátt í flugslysaæfingu sem haldin var hér í eyjum í apríl og var góð mæting á þá æfingu.
Brunamálastofnun afhenti slökkviliðinu 40 ft. Yfirtendrunargám sem er sérbúin til æfinga fyrir reykkafara, einnig eigum við slökkviliðin á suðurlandi reykköfunarbanka með 10 reykköfunartækjum sem við hér í eyjum höfum notað til æfinga nú í haust. Æfingar hjá liðinu voru 27 á árinu. Slökkviliðið er komið með grunnbúnað fyrir eiturefnaslys þetta er kerra með eiturefnabúningum, neistafrí eldsneytissuga og öðrum smá búnaði. Brunamálastofnun lagði slökkviliðinu þetta til eigna.
Eins og undanfarin ár tók Slökkvilið Vestmannaeyja þátt í eldvarnaviku Landssambands slökkviliðsmanna í byrjun desember. Það heimsóttu okkur rúmlega 60 grunnskólabörn á slökkvistöðina þar var farið yfir eldvarnir á heimilum og börnin skoðuðu tæki og tól, síðan var öllum keyrt á slökkvibíl aftur í skólann.
Mikið var af heimsóknum á slökkvistöðina á árinu bæði komu gestir af fastalandin og einnig heimafólk til að skoða okkar búnað og kynnast okkar starfi.
Vestmannaeyjum 8. Jan 2009.
Ragnar Þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri.