Hermundur Sigmundsson, prófessor við Háskóla Íslands, mun leiða rannsóknir á vegum setursins ásamt teymi fræðimanna við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og NTNU háskóla í Noregi þar sem Hermundur starfar einnig. Rannsóknir á vegum setursins munu beinast að grunnfærni í læsi og lestri, stærðfræði, náttúrufræði. Einnig verður lögð áhersla á rannsóknir á tengslum hreyfingar og vitsmunastarfsemi og á mikilvægi ástríðu, gróskuhugarfars og flæðis í skólaumhverfinu. Sérstök áhersla er á að efla samstarf við atvinnulíf, sveitarfélög og skóla á landsbyggðinni. Rannsóknarsetrið mun miðla kunnáttu og niðurstöðum til samfélagsins og sinna ráðgjöf fyrir sveitarfélög. Einnig gæti setrið komið að þróun á kennsluefni í lestri, stærðfræði og náttúrufræði fyrir yngstu stig grunnskóla eða elstu stig leikskóla.
„Fyrsta verkefnið sem rannsóknarsetrið ræðst í er gríðarlega áhugavert rannsóknar- og þróunarverkefni við grunnskólann í Vestmannaeyjum“, segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, en hún mun taka sæti í stjórn setursins. „Það er tilkomið að frumkvæði Hermundar Sigmundssonar og öflugra kennara og skólastjórnenda í Eyjum sem ætla að leiða saman hesta sína til að vinna að því að nýta markvissa eftirfylgni og raunhæft námsmat til að styðja við námsárangur allra barna.“ Hún bendir einnig á að áherslur Hermundar á tengsl hreyfingar og áhugahvatar á námsárangur séu mikilvægar og að þarna gefist tækifæri til að rannsaka og þróa betur skólastarf í þeim anda. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lýsir yfir ánægju um þennan samningi og segir: „Við Háskóla Íslands leggjum við mikla áherslu menntarannsóknir og þróun skólastarfs. Starf rannsóknasetursins styrkir þá áherslu. Ég fagna einnig samstarfi við Samtök atvinnulífsins í þessu verkefni.”
„Fyrsta verkefnið sem rannsóknarsetrið ræðst í er gríðarlega áhugavert rannsóknar- og þróunarverkefni við grunnskólann í Vestmannaeyjum“, segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, sem undirritar hér samstarfssamning við Samtök atvinnulífsins ásamt þeim Jóni Atla Benediktssyni rektor og Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA. MYND/Björn Gíslason
Samtök atvinnulífsins munu taka þátt í fjármögnun rannsóknarverkefna á vegum setursins. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að miklu skiptir að efla alla menntun, nám og færni til framtíðar: „Við hjá Samtökum atvinnulífsins höfum lagt ríka áherslu á menntamálin og stígum nú spennandi skref í samstarf við fræðasamfélagið. Það er aðkallandi mál að þróa skólastarfið í takt við breytta tíma. Menntun er undirstaða sterks atvinnulífs og heilbrigðs fyrirtækjareksturs.“
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir að rannsóknar- og þróunarverkefnið sem ber yfirskriftina Kveikjum neistann! sé vitnisburður um þann mikla metnað og grósku sem einkennir starf grunnskólans. „Þetta verkefni byggist á samvinnu kennara, skólastjórnenda, nemenda og foreldra og það er ómetanlegt að fá til liðs við okkur fræðafólk frá háskólanum. Hermundur hefur talað fyrir ákveðnum grundvallarbreytingum á skipulagi skóladagsins, raunhæfu námsmati og markvissri eftirfylgd. Þessar hugmyndir urðu að samtali um heildstætt rannsóknar- og þróunarverkefni og markmiði er fyrst og fremst að gera gott skólastarf enn betra.“
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra er sérstakur verndari rannsóknar- og þróunarverkefnisins í Eyjum. Hún fagnar samstöðu skólasamfélagsins í Vestmanneyjum, háskólans og atvinnulífsins um að skipuleggja heildstæða rannsókn á lykilþáttum menntunar með hagsmuni nemenda í huga: „Það er ljóst að aðilar þessa samstarfs deila framtíðarsýn nýrrar menntastefnu til ársins 2030 og mikilvægi markvissrar hagnýtingar menntarannsókna til umbóta í skólastarfi. Þetta er gríðarlega spennandi og ég hlakka til að fylgjast með þeim lærdómi sem verður dreginn af verkefninu.“
Samstarfssamningar um verkefnið voru undirritaðir í Háskóla Íslands 1. júní. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands, Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Helgi Rúnar Óskarsson frá Samtökum atvinnulífsins sem taka mun sæti í stjórn hins nýja rannsóknaseturs, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Páll Magnússon, þingmaður Suðurkjördæmis, og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. MYND/Björn Gíslason
