Fara í efni
29.05.2015 Fréttir

App um Eyjar

Nýtt snjallsímaforrit um sveitarfélagið og þá þjónustu sem það hefur upp á að bjóða er væntanlegt. Verkið er á lokastigum undirbúnings og nú stendur yfir allsherjar skráning á fyrirtækjum og þjónustu. Appið er hugsað bæði fyrir ferðamenn og heimamenn sem leiðsögumaður í vasa.

Deildu
Frá því í fyrrasumar hefur undirbúningur sveitarfélagsins að snallsímaforriti staðið yfir. Forritið hefur tekið sinn tíma í vinnslu en á næstunni verður það tilbúið fyrir flest öll símtæki og spjaldtölvur.
 

Snallsímaforrit þetta er hugsað þér sem leiðsögumaður í vasa, bæði fyrir heimamenn sem og gesti eyjanna. Appinu er ætlað að auglýsa alla þjónustu sem í boði er á Eyjunni, viðburði og áhugaverða staði. Kort og staðsetningarbúnaður mun leiða þig um og sjá til þess að þú ratir á alla réttu staðina. Appið er gefið út af sveitarfélaginu og unnið af hugbúnaðarfyrirtækinu Locatify. Vestmannaeyjabær hugsar appið sem þjónustu við ferðamenn og aðstoð fyrir einkafyrirtæki í að auglýsa sig og koma þjónustu sinni á framfæri.

 

Áhugaverðir staðir, gönguleiðir, söguslóðir, ratleikir og þjónusta sveitarfélagsins hefur nú þegar verið skráð. En yfir stendur allsherjar skráning á einkafyrirtækjum með einfaldasta móti. Byggir sú skráning á gangagrunni fyrri ára.

 

Appið hefur nú þegar verið kynnt lauslega innan samtaka ferðaþjónustunnar í Eyjum. Einnig hefur átt sér stað samstarf við aðal samgönguæð Eyjanna Herjólf/Eimskip.

 

Bráðlega verður haldinn opinn fundur um appið bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Fyrir nánari upplýsingar og ábendingar má senda línu á Kristinn Pálsson, kristinn(hjá)vestmannaeyjar.is